Þegar þú ert boðaður/boðuð á kynningarfund um ÞOR. verkefnið (átak fyrir langtíma atvinnuleitendur þ.e. 12 mánuði á bótum eða lengur og 30 ára og eldri) þá segir svo í tölvupóstinum og sms-inu sem þú færð:
Góðan dag, Þú ert boðaður/uð á fund hjá VMST þann 18.08 kl. 09:00 að Engjateig 9 kjallara, (í verkfræðingahúsinu). Skyldumæting. Hlökkum til að sjá þig :)
Kynningin tekur um 45 min. og síðan flettir þú möppu með stuttum lýsingum á þeim virkniúrræðum sem eru í boði. Þú merkir við þrennt á þartilgerðu eyðublaði. Þér er svo úthlutað eitt af þessu þrennu og það tilkynnt með tölvupósti og sms.
Amen
No comments:
Post a Comment