Thursday, August 12, 2010

Er ÞOR. átaksverkefni VMST. fjölmiðlasirkus?

Margumtalað átaksverkefni Vinnumálastofnunar ÞOR.:

  • Kynnt sem 70 úrræði, þú mátt velja 3 en verður bara úthlutað eitt, en áður ertu flokkaður.
  • Hvenær jú þegar þú verður boðaður á 40 - 60 manna kynningarfund þar sem er skyldumæting.
  • Markhópurinn er um 4.000 langtíma atvinnuleitendur (atvinnulaus lengur en 12 mánuði og 30 ára eða eldri) þ.e. 67 til 100 kynningafundir fram að 1. nóv..

Er þetta fjölmiðlasirkus eða hvað?

Ég bíð alla vega spenntur eftir því að verða boðaður, þar sem ég mæti auðvitað af skyldurækni. Hlakka til að sjá hver þessi 70 úrræði eru (nei fyrirgefið það verður búið að ákveða fyrir mig fyrirfram hvaða úrræði ég fæ að sjá) og mun velja þegar búið er að flokka mig það sem mér finnst geta gagnast mér best í atvinnuleitinni. Já ég má velja 3 úrræði af flokkunarlistanum en svo ræður lukkan því hverju mér verður úthlutað fyrir náð og miskunn. En hvenær, eftir hvaða kerfi er boðað? Er það stafrófsröð eða einhver önnur flokkun?

Ég held ég verði að fara í heimsókn til Vinnumálastofnunar við Engjateig til að afla mér frekari upplýsinga, því ekkert þýðir að hringja. Ég hef ekki þolinmæði til að bíða eftir tölvupósti og sms. frá Vinnumálastofnun sem kannski berst ekki fyrr en einhverntíman í október. Ætli það sé hægt að troða sér framar í röðina? Ég er jú virkur atvinnuleitandi, nú skal sýna það í verki.

Nánar síðar!

No comments:

Post a Comment