Námskeið / aðstoð fyrir atvinnuleitendur í Facebook
Ég „Sveinbjörn Fjölnir Pétursson“ hef aðstoðað atvinnuleitendur við Facebook bæði í Rauðakrosshúsinu og eins í Hlutverkasetrinu. Í þessu sjálfboðna starfi hef ég komist að því hvað Facebook er frábært tæki fyrir atvinnuleitendur til að koma sér á framfæri og jafnframt hvað það er lítið og illa nýtt í þeim tilgangi.
Hvernig getur atvinnuleitandi nýtt sér Facebook:
- Öflugt tæki til að stækka og viðhalda sínu tengslaneti.
- Auðveldar fólki að fylgjast með og koma sér á framfæri.
- Heldur fólki virku.
- Rýfur félagslega einangrun og hvetur mann til að fara út á meðal fólks.
- Hjálpar manni að vera virkur þáttakandi í hópastarfi, samanber Atvinnuleysi nei takk hópinn sem var stofnaður á Facebook og hefur haldið 18 fundi frá hruni.
- Frábært tæki til að markaðssetja sjálfan sig og sín áhugamál.
- Fyrirtæki fara að gera kröfu um að starfsfólk sitt hafi þekkingu á Facebook.
- Frábært tæki sem hver einstaklingur getur notað eins og honum nýtist best.
- Eflir samskipti við ættingja og samfélagið í heild.
Vinnumálastofnun bjóði atvinnuleitendum þessi námskeið:
- Er ekki á Facebook, en vil nýta mér verkfærið.
- Er á Facebook, en þarf aðstoð til að nýta mér verkfærið sem best.
- Er með mína eigin fartölvu og ætla að nýta Facebook til að auka mína atvinnumöguleika.
Fyrirkomulag kennslu:
- Þrjár kennslustundir (40 mín.) tvo daga í röð. (Koma sér í gang).
- Viku seinna þrjár kennslustundir á einum degi. (Er eitthvað sem þú skilur ekki og stoppar við. Mættu með spurningalista og við finnum svarið).
- Þremur vikum seinna þrjár kennslustundir á einum degi. (Eftirfylgni, hvernig hefur gengið. Reynslusögur og lærum hvert af öðru).
Samtals 12 kennslustundir.
Leiðbeinandi:
Sveinbjörn Fjölnir Pétursson sem hefur verið virkur atvinnuleitandi og þekkir vel aðstæður atvinnuleitenda. Hann hefur nýtt sér Facebook í sinni atvinnuleit og leiðbeint atvinnuleitendum með góðum árangri.
Eftirfarandi svar var að berast:
Sæll Sveinbjörn,
Takk fyrir að sýna ÞOR átakinu áhuga og kynna fyrir okkur starf þitt.
Því miður höfum við gert samninga um nægilega mörg úrræði, ásamt því að við höfum verið að horfa til lengri námskeiða
Við vitum af þér ef farið verður aftur í sambærilegt átak.
Bestu kveðjur,
xxxxxxxxxx xxxxxxxxx
Hvað á maður að segja? Best að segja sem minnst.
No comments:
Post a Comment