Býflugur er sjálfsprottinn hópur atvinnuleitenda sem hefur að markmiði að virkja aðra atvinnuleitendur til góðra verka fyrir sig sjálfa og samfélagið.
Hópurinn hefur átt tvo fundi með starfsmönnum Vinnumálastofnunar til að kanna hvort við sem notendur þjónustunnar getum orðið að liði til að styrkja stöðu atvinnuleitenda sem einstaklinga og samfélagið þar með.
Fyrri fundurinn var 10. júní sl. á honum voru Helga G. Halldórsdóttir frá Rauða krossinum og starfsmenn Vinnumálastofnunar þau Hugrún Jóhannesdóttir og Jakob Þór Einarsson. Í hópi býflugna voru þau Ármann Jóhannesson, Ásgeir M. Rudolfsson, Björg Ólafsdóttir, Margrét Thorsteinsson og Sveinbjörn Fjölnir Pétursson. Eftir fundinn var ákveðið að hittast aftur í ágúst.
Síðari fundurinn var 29. júní sl. á honum voru Gissur Pétursson og Guðlaug Hrönn Pétursdóttir starfsmenn Vinnumálastofnunar. Í hópi býflugna voru þau Ásgeir M Rudolfsson, Björg Ólafsdóttir, Davor Purusic, Margrét Thorsteinsson og Sveinbjörn Fjölnir Pétursson.
Í kjölfar þessa funda atvinnuleitenda og starfsmanna Vinnumálastofnunar var ákveðið að halda áfram að móta tillögur að verkefnum og hafa fleiri komið að því en þeir sem mættu á ofangreinda fundi. Tilbúin eru drög að 5 samstarfsverkefnum og 2 tillögur.
Fyrir hönd Býflugna og með bestu kveðju
No comments:
Post a Comment