Wednesday, August 4, 2010

Nei því miður.

Það eru margir atvinnuleitendur sem fá oft svona póst eða svipaðan sem svar við atvinnuumsókn. Það eru nefnilega 9 og upp í nokkur hundruð sem sækja um hvert auglýst starf, en bara einn er ráðinn:

Ágæti umsækjandi

Þakka þér kærlega áhugann á að starfa með okkur hjá xxxxxxx.

Við biðjumst velvirðingar á þeim töfum sem hafa orðið á málinu en fjölmargar umsóknir bárust í starfið sem þú sóttir um og var okkur vandi á höndum að velja úr hópi hæfra umsækjenda.

Við höfum nú hafið viðtöl við nokkra af umsækjendum og þykir okkur leitt að láta vita að við munum ekki geta boðið þér starf að þessu sinni.

Við vonum að þú hafir okkur í huga og haldir áfram að sækja um störf hjá fyrirtækinu sem vekja áhuga þinn.

Með vinsemd og virðingu,

Starfsmannahald xxxxxxx

Það er virðingarvert að fá svar. Staðreyndin er samt sú að það eru mörg fyrirtæki sem ekki hafa fyrir því að svara. Það finnst mér vera dónaskapur.

No comments:

Post a Comment