Sæll ágæti borgarstjóri
Ég Sveinbjörn Fjölnir Pétursson atvinnuleitandi er í forsvari fyrir hóp sem ég stofnaði á facebook fyrir tæpum tveimur árum síðan og kallast Atvinnuleysi nei takk.
Í kosningabaráttunni hittumst við í Hlutverkasetrinu og ræddum saman. Ég lofaði því að þegar þú yrðir borgarstjóri þá myndi ég panta tíma hjá þér á fyrsta degi í embætti. Þú svaraðir á móti að ef þú heyrðir ekki frá okkur þá myndir þú panta tíma hjá okkur.
Á fyrsta degi þínum í embætti hringdi ég á skrifstofu borgarstjóra, ræddi við starfskonu og pantaði tíma. Sagði henni frá okkar fyrri samskiptum og því að ég væri nú að efna mitt loforð. Ég tók jafnframt fram að best væri að hittast þegar nýtt starfsfólk borgarinnar væri búið að setja sig inn í málefni atvinnuleitenda. Hún þakkaði mér fyrir og sagði að haft yrði samband fljótlega.
Af ásettu ráði hef ég ekki fylgt eftir þessari beiðni um fund fyrr en nú. Bæði vegna þess að þið þurfið tíma til að setja ykkur inn í málin og eins vegna þess að ég hef verið á kafi í alls konar verkefnum.
En nú er komið að því. Því hringdi ég í dag í skrifstofu Borgarstjóra og er mér þá tjáð að beiðni um fund þurfi að berast með tölvupósti. Allt í lagi með það. Og eins að það sé löng bið eftir fundi. Ekki alveg eins mikið allt í lagi með það. En ég veita að borgarstjóri og hans sveit kann að forgangsraða eftir mikilvægi verkefna.
Við förum því hér með formlega fram á fund með borgarstjóra og hans lykilmönnum í málefnum atvinnuleitenda, atvinnuleysis og mikilvægast af öllu málefnum atvinnusköpunar. Við viljum ræða þessa málaflokka, koma að okkar sjónarmiðum og eins heyra frá Borginni hvað hún ætlar að gera. Vitna þá til þess að í kosningabaráttunni sagðist Samfylkingin ætla að leggja ofuráherslu á atvinnumálin. Við óskum eftir samstarfi og samvinnu. Við þekkjum málefnið út frá eigin skrokki og höfum því margt til málanna að leggja.
Við munum mæta 7 (sjö) frá Atvinnuleysi nei takk.
Veit að við munum fá áheyrn fljótlega, þar sem við erum forgangshópur.
Gera svo vel að staðfesta móttöku þessa tölvupósts. Takk.
Með virðingu og vinsemd
F. h. Atvinnuleysi nei takk
Sveinbjörn Fjölnir Pétursson
atvinnuleitandi á 26. mánuði afplánunar.
Ágæti viðtakandi.
ReplyDeleteSkrifstofa borgarstjóra hefur móttekið tölvupóst þinn. Við munum svara þér eins fljótt og kostur er.
The Mayor's Office has received your e-mail. We will respond as soon as
possible.
Alltaf góður.
ReplyDeleteGó, Sveinbjörn, gó.
ReplyDelete