Sunday, October 10, 2010

Setja ábyrgð á atvinnurekendur - Fara í forvarnir

Uppsögn er háalvarlegt mál. Þegar fólk missir vinnuna þá finnst mér ekki nóg ábyrgð sett á atvinnurekandann. Ég hef velt fyrir mér af hverju svo margir atvinnuleitendur séu upp á kant við Vinnumálastofnun og komist að þeirri niðurstöðu að það sé vegna þess að fólk sé ekki upplýst. Atvinnuleitendur eru ekki upplýstir um það hvernig kerfið virkar, hvaða rétt þeir hafa og hvaða skyldur.

Ég stakk upp á því á fundi með Vinnumálastofnun að hún færi í forvarnir og setti þá skyldu á atvinnurekendur að upplýsa um réttindi þegar þeir segja upp fólki. Ekki verði leyfilegt að segja upp fólki nema að uppfylla fyrst ákveðnar kröfur. Vinnumálastofnun myndi þá láta útbúa upplýsingaefnið fyrir atvinnurekandann.

Margir vita ekki að þeir eru ekki á atvinnuleysisbótum nema frá þeim degi sem þeir skrá sig og halda að þeir hafi nógan tíma. Ef viðkomandi hefur verið upplýstur um þetta veit hann hvernig hann á að standa að því. Það er svo margt sem atvinnuleitendur vita ekki um og þess vegna skapast úlfúð gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitendum finnst þeir reka sig á veggi og missa réttindi vegna skorts á upplýsingum.

Mér finnst að einstaklingarnir eigi ekki að þurfa að sækja alla hluti heldur eigi kerfið að passa upp á að þeir njóti þeirra réttinda sem þeim ber. Ef fólk fer upplýst inn í atvinnuleysið þá mun álagið á Vinnumálastofnun minnka sjálfkrafa og mistökum fækka.

No comments:

Post a Comment