Friday, October 8, 2010

Að gera gagn – þú færð það launað

  • Ég hef verið frjór og virkur frá því ég missti vinnuna. Stofnaði Facebook hópinn Atvinnuleysi nei takk, en við hittumst reglulega. Nýlega héldum við 20. fundinn okkar. Á þessum fundum gerast alltaf skemmtilegir hlutir. Við peppum hvort annað upp og veitum stuðning.
  • Ég hef haldið facebook-námskeið fyrir atvinnuleitendur. Mér finnst facebook frábært tæki til að halda sér virkum, fylgjast með og koma sér á framfæri. Góð leið til að efla sitt tengslanet. Þeir sem hafa hug á því að ég haldi facebooknámskeið fyrir hópa sendi inn beiðni á netfangið facebooknamskeid@gmail.com.
  • Ég hef óhikað komið fram í viðtölum og opinskátt rætt mín mál og málefni atvinnuleitenda. Eftir viðtal í Kastljósinu hafði Spaugstofan samband og í framhaldi af því hóaði ég saman atvinnuleitandi fólki til að vera aukaleikarar hjá þeim. Við vorum með þeim síðastliðinn vetur og verðum með þeim í vetur á Stöð 2. Þetta hefur undið upp á sig og spurst út og nú er ég farinn að útvega aukaleikara í kvikmyndir, auglýsingar, sjónvarpsþætti og tónlistarmyndbönd. Við höfum leikið í Toyota og Nova auglýsingum. Frönsku tónlistarvídeói. Kvikmyndunum Djúpinu og Eldgosinu. Sjónvarpsþáttunum Hlemma Video og nú síðast í Stuttmynd um hrunið. Þeir atvinnuleitendur sem vilja vera aukaleikara sendi inn upplýsingar inn á netfangið aukaleikarar@gmail.com.

No comments:

Post a Comment