Hvers vegna fundur um fátækt á Íslandi 8. september 2010?
Helga Þórðardóttir segir:.
"Við sem stöndum að þessum fundi erum blandaður hópur fólks. Hópurinn hefur hlotið nafnið BÓT. og er aðgerðahópur um bætt samfélag. Við höfum annað hvort kynnst fátækt af eigin raun eða þá í starfi fyrir fátæka. Fátækt er viðkvæmt umræðuefni sem ekki má tala um á Íslandi í dag og þar af leiðandi verða ráðstafanir hins opinbera fyrir þennan hóp ófullnægjandi.
Við viljum reyna að koma umræðu um fátæka Íslendinga upp á yfirborðið í þeirri von að vandamálið verði viðurkennt og ráðstafanir framkvæmdar sem hjálpa í raun og veru.
Fátækt á Íslandi er mannréttindabrot og því mjög brýnt að umræða skapist til þess að íslensk stjórnvöld viðurkenni vandann".
Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna,
25. grein
1. Allir eiga rétt á lífskjörum sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan þeirra sjálfra og fjölskyldu þeirra. Telst þar til fæði, klæði, húsnæði, læknishjálp og nauðsynleg félagsleg þjónusta, svo og réttur til öryggis vegna atvinnuleysis, veikinda, fötlunar, fyrirvinnumissis, elli eða annars sem skorti veldur og menn geta ekki við gert.
2. Mæðrum og börnum ber sérstök vernd og aðstoð. Öll börn, hvort sem þau eru fædd innan eða utan hjónabands, skulu njóta sömu félagslegu verndar.
Ennfremur segir Helga.
"Fátækt hefur alltaf verið til á Íslandi. Í dag er hópur fátækra enn augljósari því hann er í æpandi andstöðu við það ríkidæmi sem er til staðar. Eftir bankahrunið hefur fátækum fjölgað á Íslandi. Hópurinn hefur einnig breyst. Fjölskyldum sem hafa orðið stórskuldugar og jafnvel gjaldþrota eru þessa dagana að fjölga í hópi fátækra. Allar kannanir og spár benda til þess að þessi hópur muni stækka verulega á næstu misserum. Þessi atriði viljum við fá rædd á þessum fundi.
Ákvörðun um lágmarksframfræslu á Íslandi hefur aldrei verið tekin af til þess bærum yfirvöldum og það viljum við fá rætt á fundinum.
Við viljum fá umræðu um hver ber ábyrgð á núverandi ástandi fátækra á Íslandi. Við viljum kanna hvort einhver aðili hafi manndóm í sér til að standa upp og taka af skarið og leysa vandamálin. Þess vegna höfum við kallað til alla þá aðila sem við teljum að geti haft áhrif og breytt þessu ástandi til betri vegar . Á hinn bóginn er vel hugsanlegt að yfirvöld séu sátt við það að fólk svelti og sé komið upp á náð og miskun hjálparsamtaka".
Kemst því miður ekki vegna annarra skuldbindinga.
ReplyDeleteHér er þó mitt innlegg frá því í nóv 2009.
http://www.vr.is/index.aspx?groupid=475869&tabid=1078&NewsItemID=15538&ModulesTabsId=2300
Bkv,
Kristinn Örn