Saturday, October 23, 2010

Forvarnir vantar

Ég pantaði í sumar viðtal hjá velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Mætti þar og sagðist nú vera búinn með 2/3 af mínum rétti til atvinnuleysisbóta. Þar sem ég væri nú skipulagður maður og hugsaði fram í tímann langaði mig til að vita hvað Borgin ætlaði að gera fyrir mig ef ég væri ekki kominn með fastar tekjur eftir eitt ár.

Þar komst ég að því að það er alveg sjálfsagt að veita þér aðstoð en eingöngu ef þú ert kominn í ræsið, eignalaus og helst skilinn við konuna því annars skerðum við þínar bætur með hennar tekjum, krónu á móti krónu.

Semsagt alveg sjálfsagt að taka þig upp úr ræsinu með kíttispaða. Mér varð á að spyrja hvað ætlið þið að gera í forvörnum þar sem vitað er að þúsundir einstaklinga munu lenda á sveitarfélögunum á næstu mánuðum. Starfsmaðurinn skildi ekki spurninguna, vitnaði bara í reglugerðir og skerðingar.

Skelfileg tilhugsun.

Tuesday, October 19, 2010

Stofnun í fóstur

Öll þekkjum við það að hægt er að taka geit, hænsni og jafnvel fjöru eða landsskika í fóstur. Hvernig væri að taka t.d. Vinnumálastofnun og/eða Tryggingastofnun í fóstur? Kannski verða þær að einni stofnun fljótlega, hver veit?

Við hin atvinnulausu mættum á staðinn og tækjum utan um starfsmenn. Nú mátt þú fara heim og hvíla þig, því þú ert búinn að vera undir miklu álagi undanfarna mánuði. Ég skal svara í símann og ræða við þá atvinnuleitendur eða bótaþega sem koma hingað. Svo getum við bakað vöflur, sungið og verið með skemmtiatriði. Sköpum nýjann móral í stofnununum og léttum andrúmsloftið.

Sunday, October 17, 2010

Bindandi samningur um atvinnu

Í dag er verið að setja óhemju fé í að senda atvinnuleitendur á námskeið og í alls konar virkni úrræði. Við vitum það öll að ef við lærum eitthvað og notum síðan ekki þessa nýju þekkingu eða færni fljótt og reglulega að þá gleymist hún.

Þetta er eins og að pissa í skóinn sinn eða henda peningum út um gluggann. Því finnst mér að það eigi að gera samning. Þú kæri atvinnurekandi ert með mannaflaþörf upp á 10 manns á næstu 12 mánuðum. Þú skuldbindur þig til að ráða fólk af atvinnuleysisskrá og í millitíðinni þjálfum við hjá Vinnumálastofnun / Stéttarfélögum einstaklinginn eftir þínum kröfum. Þannig að þegar hann hefur störf þá er hann kominn með þá þekkingu sem nýtist best þínu fyrirtæki.

Atvinnueleitandinn hefur því markmið og ákveðna gulrót til að stefna á. Allir græða, fjármunum vel varið.

Saturday, October 16, 2010

Atvinnutækifærastofnun ríkisins

Koma þarf á fót einhvers konar atvinnutækifærastofnun ríkisins, fjöldans eða fólksins, þar sem stöðugt væri verið að hugsa um það að skapa verðmæti og framlegð inn í samfélagið, flytja inn atvinnutækifæri og skapa atvinnutækifæri.

Í dag er enginn að vinna markvisst í þessum málaflokki. Oft er sprota- og frumkvöðlafyrirtækjum hampað. En fólk á að vita að þessi fyrirtæki skila ekki hagnaði fyrr en eftir nokkra ára starfsemi. Það er gott fyrir framtíðina en það sem skiptir megin máli er að setja í gang starfsemi á morgun sem skilar hagnaði strax. Að nýta auðlindir rétt, full vinna hráefni hér heima, nota innlent eldsneyti og fleira í þeim dúr.

Thursday, October 14, 2010

Talsmaður / umboðsmaður atvinnuleitenda og/eða bótaþega

Þjóðfundur atvinnuleitenda var haldinn í vor af mínu frumkvæði og félaga minna í facebookhópnum Atvinnuleysi nei takk. Með dyggri aðstoð og góðri samvinnu við ASÍ.

Í niðurstöðum varð í langefsta sæti hugmyndin um að koma á fót embætti talsmanns atvinnuleitenda. Einmitt sú hugmynd sem ég hafði verið að kynna í nokkra mánuði. Við í hópnum Atvinnuleysi nei takk höfum verið að víkka þetta og erum nú að tala um umboðsmann eða talsmann bótaþega sem myndi þá sjá um stóran hóp manna, atvinnuleitendur, öryrkja, ellilífeyrisþega og þá sem eru á framfærslu bæjarfélaganna.

Margir í þessum hópi gætu unnið ef þeim byðist störf við hæfi. Þjóðfélagið hefur ekki efni á því að hafa hátt í 40 þúsund manns sem skapar ekki nein verðmæti eða framlegð inn í samfélagið. Á borgarafundi um fátækt, sem haldinn var nýlega í Ráðhúsi Reykjavíkur, kom fram tillaga um að setja í gang upplýsingafulltrúa fyrir bótaþega sem yrði ekki hluti af stjórnsýslunni heldur fengi sitt bakland frá til dæmis hjálparstofnunum.

Margar aðrar hugmyndir komu fram á þjóðfundi atvinnuleitenda þar sem 80 manns víðsvegar af landinu sátu saman í hálfan dag. Fyrirhugaður er fundur með ASÍ. til að þrýsta á um að koma þessum hugmyndum í framkvæmd. Stefnt er á fund 4. nóvember nk..

Wednesday, October 13, 2010

Koma með nýja grunnhugsun – ekki nota bara plástra

Vinnumálastofnun hefur alltof mikið stofnanaviðmót. Sem dæmi má nefna bréf stofnunarinnar. Helmingurinn af textanum er tilvitnanir í reglugerðir og lög. Manneskjulega þáttinn vantar.

Vinnumálastofnun lítur á sig sem fjárgæslumenn ríkissjóðs, ekki þjónustustofnun fyrir atvinnuleitendur. Mér finnst að það þurfi að snúa kerfinu á hvolf þannig að passað sé upp á að einstaklingarnir fái það sem þeim ber og þeir þurfi ekki að sækja alla skapaða hluti sjálfir. Þú ert brotin manneskja eftir uppsögn og því oft á tíðum ekki fær um að gæta þinna hagsmuna.

Við í hópnum Atvinnuleysi nei takk höfum fundað með lykilstarfsmönnum Vinnumálastofnunar með það að markmiði að gera stofnunina notendavænni. Nú er verið að spá í það að Vinnumálastofnun sameinist Tryggingastofnun ríkisins. Hvað gerist þá? Verður til Skerðingarstofnun ríkisins? Um mig fer hrollur.

Ég segi oft burt með kerfiskjaftæðið og innleiðum nýja grunnhugsun inn í samfélagið. Mín leið til að stuðla að þeirri breytingu er að bjóða fram mína krafta til stjórnlagaþings. Ég býð mig fram til stjórnlagaþings og bið um þinn stuðning. Ný stjórnarskrá lýðveldisins Íslands verður skjal nýrrar grunnhugsunar.