Sunday, February 6, 2011

Fundur með Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra

Fulltrúi facebook hópsins Atvinnuleysi nei takk Sveinbjörn Fjölnir Pétursson og tveir fulltrúar Býflugnanna (Vinnum saman - Ný viðhorf) þær Björg Ólafsdóttir og Margrét Thorsteinsson fóru á fund velferðarráðherra Guðbjarts Hannessonar og hans fólks ásamt stjórnarformanni Vinnumálastofnunar Runólfi Ágústssyni.

Björg Ólafsdóttir og Margrét Thorsteinsson tóku saman eftirfarandi skjal með tillögum til úrbóta í málefnum atvinnuleitenda. Þetta skjal var lagt fram á fundinum og rætt ítarlega í rúma klukkustund.

Við þökkum góðan fund.

Fundur atvinnuleitenda, stjórnarformanns Vinnumálastofnunar og velferðarráðherra 2. febrúar 2011.

Ítarlegur listi yfir tillögur atvinnuleitenda

hugmyndir að lausnum og leiðum.

Réttarstaða:

  1. Atvinnuleitendur eru teknir af bótum og síðan spurðir nánar. Atvinnuleysisbætur eru svo lágar að endar ná oft ekki saman og því skiptir tími leiðréttinga miklu máli.

Hugmynd að lausn: Að atvinnuleitandi sé ekki tekinn af bótum fyrr en við lokaúrskurð og að refsingin sé að fara úr 100% í 75% bætur í 2 mánuði, þ.e. skerðing um fjórðung. Í núverandi árferði dregur fólk varla fram lífið á svona lágum bótum. Því er það of hörð refsing að taka fólk af bótum í tvo mánuði og getur jafnvel leitt til heimlismissis í sumum tilfellum.

  1. Veikindarétt eins og hjá öðrum borgurum.

Hugmynd: Að fá 1 dag í veikindarétt fyrir hvern mánuð á atvinnuleysisbótum, það er 50% af því sem launafólk fær.

  1. Réttur til háskólanáms var skertur í janúar 2010. Einingafjöldi fór úr 12 ECTS í 10 ECTS einingar (4 einingar nýtast ekki ef eitt fag er 6 einingar).

Athugasemd: Einkennileg ákvörðun að skerða þessa heimild á krepputíma. Menntun og nýsköpun leiðir af sér atvinnusköpun eins og læra má af sögu þeirra þjóða, sem farið hafa þá leið.

  1. Umboðsmenn atvinnuleitenda.

Hugmynd: Tvö ráðin í vinnumarkaðsúrræði í mesta lagi eitt ár, en annar af þeim sem fyrst er ráðin verði í eitt og hálft ár til að viðhalda þekkingu innan starfsins. Síðan líða 6 mánuðir á milli þess að nýr atvinnuleitandi tekur við af þeim sem hefur verið lengur í starfi.

  1. Lengja tímabil atvinnuleysisbótaréttar í 5 ár.

Athugasemd: Einnig sjá til þess að þeir sem hafa dottið út af bótum nýlega fari aftur á bætur ef þeir hafa ekki verið atvinnulausir lengur en 5 ár.

  1. Úrræði og stuðning fyrir fólk sem dettur út af bótum þar til það kemst í önnur úrræði. Við getum ekki látið fólk falla á milli í kerfinu. (Kunningi okkar lenti í þessu, einstæður með tvö börn í jólamánuðinum 2010).
  2. Útreikningur á raunhæfu lágmarks framfærsluviðmiði verði gerður opinber svo fljótt sem auðið er.
  3. Að detta af bótum eða fara í tímabundna vinnu (stundum jafnvel í tvo daga) verði ekki þannig að einstaklingur þurfi að vinna upp rétt aftur t.d. á afsláttarkorti vegna lækniskostnaðar og desemberuppbótar.

Hugmynd að lausn 1: Ef einstaklingur kemur inn á atvinnuleysisbætur aftur innan 6 mánaða skerðast þessi réttindi ekki.

Hugmynd að lausn 2: Ef atvinnuleitandi hefur verið atvinnulaus í 6 mánuði á síðustu 12 mánuðum og er þessa stundina atvinnulaus þá á hann rétt á þessu.

  1. Ekki skerða bótatímbil á meðan atvinnuleitandi er t.a.m. í vinnumarkaðsúrræði.
  2. Rétt á orlofi.

Hugmynd: Að atvinnuleitendur fái a.m.k. 12 daga á ári, sem er 50% af því sem launamaður fær.

  1. Fá tvo áheyrnafulltrúa með tillögurétt og málfrelsi í stjórn Vinnumálastofnunar.

Hugmynd: Aðilar innan Rauða krossins eru tilbúnir til að vera atvinnuleitendum innan handar t.a.m. við val á áheyrnafulltrúum.

Atvinnutilboð

  1. Heilsa og heilsa er ekki það sama. Öll vinna hentar ekki öllum. Ekki megi þvinga atvinnuleitenda í hvaða starf sem er í boði, þarf að vera sambærilegt við það sem hann hefur áður unnið við eða hefur hæfileika og getu til. Þannig að einstaklingurinn henti í starfið og starfið henti einstaklingnum.

Hugmynd að lausn: Mikilvægt er að hægt sé að ræða málin án þess að atvinnuleitandi eigi á hættu að vera tekinn af bótum.

Virkni- og vinnumarkaðsúrræði:

  1. Að virkniúrræði verði hnitmiðaðri og meira í samstarfi við notandann.

Hugmynd að lausn: Úrræði ýmis konar þarf að hugsa í gegn og fjármagna eins og t.a.m. 856 ný störf árið 2010 og ábyrgðin þarf að vera skýr og vanda þarf til verka. 856 störf er dæmi um frábært verkefni. Slíkt verkefni má fjölfalda, en vanda aðeins betur til verka. (Dæmi voru um að atvinnuleitendur voru ráðnir inní störf á ákveðnum mánaðarlaunum, sem síðar voru lækkuð um 50 þúsund krónur. Launin voru þá komin undir lægsta taxta VR).

  1. Auka við úrræði fyrir atvinnuleitendur.

Hugmynd 1: Skiptimarkaður við vinnandi verði heimilaður sem vinnumarkaðsúrræði. Þeir sem eru vinnandi hleypi atvinnuleitenda í sitt starf. Þetta minnkar líkurnar á örorku langtímaatvinnuleitenda og gefur vinnandi fólki kost á að fara í endurmenntun eða sem úrræði gegn starfskulnun. Þetta dreifir áfalli kreppunnar á fleiri herðar og minnkar þannig skaðan á mannauðinum. Þetta getur verið öflugt tímabundið verkefni þar sem ekki þarf að fylgja því fjármagnskostnaður því sá vinnandi færi á atvinnuleysisbætur á meðan atvinnuleitandinn er á sömu launum og sá sem hann skipir við.

Hugmynd 2: Ríkið búi til störf sem langtímaatvinnuleitendur skiptist á að vinna 6 mánuði í senn. Þessi störf geta falið í sér ýmislegt sem miðar að því að efla nýsköpun, auka hráefnisnýtingu, efla markaðssetningu á íslenskum vörum, finna leiðir til að spara gjaldeyri og fleira sem stuðlar að því að Ísland komist sem fyrst uppúr kreppunni. Þetta verkefni býður uppá samstarf við skóla og atvinnulífið.

  1. Athafnasmiðju í Reykjavík fyrir alla aldurshópa. – Þetta er úrræði sem lengi hefur verið kallað eftir meðal atvinnuleitenda. Slíkur staður getur gefið atvinnuleitendum virkni, fastan punkt í tilveruna og stökkpall til að framleiða sínar eigin vörur. Þetta er góð forvörn fyrir atvinnuleitendur svo þeir endi ekki sem öryrkjar.

No comments:

Post a Comment