Sárlasinn heima.
Hringdi í Vinnumálastofnun til að láta vita að ég kæmist ekki í bókað viðtal á morgun.
Svar:
Þú mátt ekki vera lasinn á bótum, því ertu tekinn af bótum þar til þú lætur vita að þú sért orðinn frískur. Hefði ég bara sleppt því að mæta þá hefði ég misst bætur í 40 daga. Ég er því að græða helling.
NOT Ætli ég sé ekki frekar að missa mannréttindi?
Skömmu seinna barst sms. og svo stuttu síðar tölvupóstur (ath. hvorugu hægt að svara = noreply).Sæll Sveinbjörn
Þú hefur verið bókaður í viðtal í ráðgjafadeild okkar að Engjateig 11, mánudaginn 6.des kl. 10. Skyldumæting, að öðrum kosti verður þú afskráður og mál þitt sent til greiðslustofu. Kveðja, ráðgjafar VMST
Nú er bara spurningin. Er þetta eðlilegur samskiptamáti. Bið ykkur að hafa í huga að ég er fullorðin manneskja.
Setti mig í samband við stéttarfélagið mitt VR. Þetta svar barst:
ReplyDeleteJá, svona eru lögin frá Alþingi og lítið við því að gera sem slíkt, nema auðvitað að ASÍ myndi beita sér fyrir breytingu á því.
Ef veikindi viðkomandi standa hins vegar lengur en 12 daga á hann auðvitað rétt á sjúkradagpeningum hjá sjúkrasjóði VR ef hann greiðir hingað.