Friday, May 6, 2011

Nýr kjarasamningur bótaþega?

Nýr kjarasamningur ASÍ. og SA. hefur verið undirritaður. Þar koma fyrir þrjár klausur sem tengjast atvinnuleitendum og öðrum bótaþegum:
Frá ríkisstjórn vegna kjarasamnings:
  • Stjórnvöld skuldbinda sig til að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að endurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir. Ráðist verður í sérstakt tilraunaverkefni þar sem stéttarfélögin verða helstu veitendur þjónustunnar. Markmiðið er að bæta þjónustu við atvinnuleitendur hvað varðar skráningu, vinnumiðlun og vinnumarkaðsúrræði.

Úr nýjum kjarasamningi:

  • Atvinnuleysisbætur og bætur almannatrygginga fá hliðstæða hækkun og þeir sem eru á lægstu töxtum.

  • Átak verður sett af stað í þjónustu við atvinnuleitendur á vegum stéttarfélaganna og menntunarúrræði verða sett á oddinn bæði fyrir yngra fólk og þá sem komnir eru af skólaaldri.

2 comments:

  1. Á að spyrja atvinnuleitendur um þeirra mál? Eða eiga sérfræðingar að ofan að ákveða hvað okkur er fyrir bestu. Já mamma og pabbi!? Ég er alla vega ekki hrifinn af því að Velferðarráðuneytið hvað þá Vinnumálastofnun annist mitt uppeldi.

    ReplyDelete
  2. Spurningin er þá hvaða úrræði þeir ætla sér að koma á fót og hvaða tilgangi og markmiðum þau ná. Enn eitt sjálfstyrkingarnámskeiðið á óbreyttum forsendum dugar skammt.

    ReplyDelete