Thursday, November 4, 2010

Fundur ASÍ með fulltrúum atvinnuleitenda

Fimmtudaginn 4. nóvember fundaði Atvinnuleysi nei takk með framkvæmdastjóra ASÍ sem sæti á í stjórn Vinnumálastofnunar. Á fundinn mættu fyrir hönd Atvinnuleysis nei takk Björg Ólafsdóttir, Þórður Örn Guðmundsson, Sveinbjörn Fjölnir Pétursson og Þórhallur Árni
Ingason. Halldór Grönvold mætti fyrir hönd ASÍ.

Gögn sem lögð voru fram á fundinum:
  • „Nokkrar ábendingar frá vinnufundi með atvinnuleitendum
  • 5. maí 2010“
  • „RÉTTINDI Á VINNUMARKAÐI – Umræðuskjal fyrir vinnu í málstofu um velferðar- og
  • vinnumarkaðsmál (á ársfundi ASÍ 2010)
  • „Ályktanir ársfundar ASÍ 2010“.

Fundurinn var haldinn til að fylgja eftir samráðsfundi ASÍ um málefni atvinnuleitenda frá 5. maí 2010.

Fyrri hluti fundarins fór í að ræða þjónustu Vinnumálastofnunar (VMST) við atvinnuleitendur. Þar komu fram marga áhugaverðar ábendingar um hvað betur má fara í þjónustu stofnunarinnar. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að styðja við atvinnuleitendur og aðstoða þá í virkni, þ.m.t. að virða frumkvæði þeirra sjálfra það sem þeir eru að gera í eigin málum. Þá fá atvinnuleitendur stundum á tilfinninguna að verið sé að refsa þeim.

M.a. var bent á eftirfarandi:

- Erfitt er fyrir atvinnuleitendur að hafa samband við stofnunina t.d. þegar þeir eru boðaðir til
funda, en hafa ekki tök á að mæta, t.d. þar sem þeir eru í virkniúrræðum.
- Ekki er tekið tillit til áhugasviða og væntinga atvinnuleitenda við ákvörðun um virkniúrræði
og í samskiptum við þá almennt. Í því sambandi var m.a. bent á reglur sem nú gilda um val á
námskeiðum í ÞOR verkefninu.
-Stofnunin hefur ekki þekkst boð um aðstoð/samstarf við atvinnuleitendur.
- Ekki er nægilega vel staðið að því að upplýsa atvinnuleitendur um réttindi þeirra og sérkjör
sem þeim bjóðast, t.d. varðandi heilbrigðisþjónustu.
- Takmörk eru fyrir því hvað atvinnuleitendum stendur til boða mörg námskeið, þeim að
kostnaðarlausu.

Í þessu sambandi var rætt um aðkomu atvinnuleitenda að starfi Vinnumálastofnunar og kom m.a. fram að atvinnuleitendur hefðu óskað eftir aðkomu að stjórn VMST.

Þá var rætt um upplýsingamiðlun til atvinnuleitenda, bæði á vefnum og í rituðu formi. M.a. kom fram að nú er kominn í loftið upplýsingavefur fyrir atvinnuleitendur www.betritid.is.

Á seinni hluta fundarins fór Halldór yfir eftirfylgni ASÍ í framhaldi af vinnufundinum í maí. Hann
gerði grein fyrir minnisblaðinu sem hann lagði fram vegna vinnu við endurskoðun laganna um atvinnuleysistryggingar, sem byggir á niðurstöðum vinnufundarins. Hann gerði jafnframt grein
fyrir stöðunni varðandi endurskoðunarvinnuna. Fram kom m.a. að fyrir liggur að bótatímabilið verður lengt. Þá greindi hann frá álitaefnum sem komið hafa upp í umræðunni, m.a. vegna tillagna ASÍ, sem nú eru til frekari skoðunar í ráðuneytinu. Þá greindi Halldór frá niðurstöðum ársfundar ASÍ varðandi málefni atvinnuleitenda. Þar kom m.a. fram krafa varðandi vinnumarkaðsaðgerðir og atvinnuleysisbætur og upphæð þeirra, sem væntanlega verður tekin upp við stjórnvöld í tengslum við kjarasamningaviðræðurnar sem nú eru að hefjast. Þá var einnig rætt um ábendingar um að sett verði fram „lágmarkstekjuviðmið“. Loks benti hann á að hugmyndin um „Umboðsmann atvinnuleitenda/styrkþega“ hefði ekki fengið eitt einasta atkvæði í umfjölluninni í vinnuhópum á ársfundi ASÍ.

Þá sögðu fulltrúar atvinnuleitenda frá verkefninu „Athafnasmiðjan“ og óskuðu eftir stuðningi og beinni aðstoð ASÍ/verkalýðsfélaganna við verkefnið.

Halldór lagði eftirfarandi til í lok fundarins:

1. Efnt verði til formlegs fundar Vinnumálastofnunar með atvinnuleitendum. Á þann fund verði boðaðir formaður stjórnar Vinnumálastofnunar, fulltrúar úr stjórn, lykilstarfsmenn VMST og fulltrúar atvinnuleitenda. Markmið fundarins verði að fjalla um athugasemdir og ábendingar atvinnuleitenda varðandi vinnumiðlun og framkvæmd laga um vinnumarkaðsaðgerðir og atvinnuleysistrygginga. Þá verði fjallað um mögulega aðkomu atvinnuleitenda að starfi VMST með formlegum hætti, s.s. með stofnun notendahóps/notendaráðs atvinnuleitenda. Fundurinn verði undirbúinn með því að fulltrúar atvinnuleitenda setji fram ábendingar sínar og athugasemdir með skriflegum hætti. Halldór/ASÍ mun vinna að því að koma slíkum fundi á.

2. Skoðuð verði nánar upplýsingamiðlun til atvinnuleitenda og möguleg aðstoð ASÍ að því máli. Í því sambandi var rætt um að skoða frekar vefinn www.betritid.is og hvernig megi styðja hann og styrkja, fjárhagslega og starfslega.

3. Halldór mun skoða hvort og þá með hvaða hætti ASÍ og aðildarfélög þess geta stutt við Athafnasmiðjuna, bæði beint og óbeint. Jafnframt var bent á að rétt væri að leita til sveitarfélaganna og Vinnumálastofnunar.

4. Halldór mun gera fulltrúum atvinnuleitenda grein fyrir framgangi mála varðandi endurskoðun laganna um atvinnuleysistryggingar.

5. Halldór mun senda þátttakendum á fundinum gögn varðandi vinnu á Evrópuvísu um lágmarkstekjuviðmið og gögn frá Hagstofu Íslands um lágtekjumörk og tekjudreifingu 2004 - 2009 á Íslandi og annars staðar í Evrópu.

Punkta ritaði Halldór Grönvold.

Þeir atvinnuleitendur sem vilja, koma að vinnu við undirbúning á fundi með ASÍ og Vinnumálastofnun og sitja þann fund gefi sig fram með því að senda póst á netfangið: stjornlagathingmadur@gmail.com.

No comments:

Post a Comment