Tuesday, November 30, 2010

Atvinnuleitandi, já - En fullorðin manneskja, ?

Sárlasinn heima.

Hringdi í Vinnumálastofnun til að láta vita að ég kæmist ekki í bókað viðtal á morgun.

Svar:

Þú mátt ekki vera lasinn á bótum, því ertu tekinn af bótum þar til þú lætur vita að þú sért orðinn frískur. Hefði ég bara sleppt því að mæta þá hefði ég misst bætur í 40 daga. Ég er því að græða helling.

NOT Ætli ég sé ekki frekar að missa mannréttindi?

Skömmu seinna barst sms. og svo stuttu síðar tölvupóstur (ath. hvorugu hægt að svara = noreply).

Sæll Sveinbjörn
Þú hefur verið bókaður í viðtal í ráðgjafadeild okkar að Engjateig 11, mánudaginn 6.des kl. 10. Skyldumæting, að öðrum kosti verður þú afskráður og mál þitt sent til greiðslustofu. Kveðja, ráðgjafar VMST

Nú er bara spurningin. Er þetta eðlilegur samskiptamáti. Bið ykkur að hafa í huga að ég er fullorðin manneskja.

Friday, November 5, 2010

Athafnasmiðjan

Stéttarfélög og Vinnumálastofnun hafa sett mikla fjármuni í það að bjóða atvinnuleitendum upp á frí námskeið af ýmsum toga, sem er gott mál. En nú er komið að næsta skrefi. Það þarf að skapa atvinnuleitendum vettvang til þess að nýta sína þekkingu og færni til að skapa verðmæti fyrir samfélagið.

Því höfum við nokkrir atvinnuleitendur sem störfum í hóp sem við nefnum Býflugurnar hafið undirbúning að stofnun Athafnasmiðju, þar sem atvinnuleitendur geta komið saman og unnið að sínum hugðarefnum, framleitt, skapað og gert við. Meiningin er að einstaklingar geti fundið sér farveg og jafnvel lífsviðurværi í svona smiðju. Komið gömlum hugmyndum og nýjum í framkvæmd.

Við höfum farið í hugmyndavinnu um verkefnið og erum að kanna með húsnæði og samstarfsaðila. Eins er verið að vinna að viðskiptaáætlun og setja niður á blað lög og reglur fyrir starfsemina.

Dæmi um hugmyndir:

Þróa og halda námskeið: Smíðanámskeið, margmiðlunarnámskeið, leiklistarnámskeið og endurvinnslunámskeið.
Aðstaða fyrir einyrkja, einstaklinga og hópa allskonar.
Aðstaða fyrir viðgerðir á heimilistækjum og aðstoð við viðgerðir á heimilistækjum.
Gagnræðurými (Skýring: herbergi/svæði þar sem hægt er að vera með gagnræður og þjóðfundarhugarflug).
Veita ráðgjöf út í samfélagið.
Leigja út einyrkjabása eða aðstöðu.
Hugmyndahópur/ ThinkTank hópur.
Mismunandi verkstæði, tré, málmur o. fl.
Leikfangaendurnýting og markaður.
Matreiðsla, td. tilraunaeldhús, nýta afurðir og útflutningur.
Framleiðsla á video og myndefni.
Nýting á uppsöfnuðum rekaviði.
Ýmiskonar smáframleiðsla.
Endurvinnsla/endurnýting.
Einingar fyrir kúluhús.
Föndur sem skapar verkefni.
Vefnaður úr íslenskun náttúruafurðum.
Vöruþróun.
Sauma- og prjónahorn.

Vilt þú vera með? Svarið er auðvitað já og því mætir þú á næsta kynningarfund hjá Býflugunum / Vinnum saman - Ný viðhorf, en þeir eru alla þriðjudaga kl. 14 í Rauðakrosshúsinu, Borgartúni 25.

Sjáumst!

Thursday, November 4, 2010

Fundur ASÍ með fulltrúum atvinnuleitenda

Fimmtudaginn 4. nóvember fundaði Atvinnuleysi nei takk með framkvæmdastjóra ASÍ sem sæti á í stjórn Vinnumálastofnunar. Á fundinn mættu fyrir hönd Atvinnuleysis nei takk Björg Ólafsdóttir, Þórður Örn Guðmundsson, Sveinbjörn Fjölnir Pétursson og Þórhallur Árni
Ingason. Halldór Grönvold mætti fyrir hönd ASÍ.

Gögn sem lögð voru fram á fundinum:
  • „Nokkrar ábendingar frá vinnufundi með atvinnuleitendum
  • 5. maí 2010“
  • „RÉTTINDI Á VINNUMARKAÐI – Umræðuskjal fyrir vinnu í málstofu um velferðar- og
  • vinnumarkaðsmál (á ársfundi ASÍ 2010)
  • „Ályktanir ársfundar ASÍ 2010“.

Fundurinn var haldinn til að fylgja eftir samráðsfundi ASÍ um málefni atvinnuleitenda frá 5. maí 2010.

Fyrri hluti fundarins fór í að ræða þjónustu Vinnumálastofnunar (VMST) við atvinnuleitendur. Þar komu fram marga áhugaverðar ábendingar um hvað betur má fara í þjónustu stofnunarinnar. Áhersla var lögð á mikilvægi þess að styðja við atvinnuleitendur og aðstoða þá í virkni, þ.m.t. að virða frumkvæði þeirra sjálfra það sem þeir eru að gera í eigin málum. Þá fá atvinnuleitendur stundum á tilfinninguna að verið sé að refsa þeim.

M.a. var bent á eftirfarandi:

- Erfitt er fyrir atvinnuleitendur að hafa samband við stofnunina t.d. þegar þeir eru boðaðir til
funda, en hafa ekki tök á að mæta, t.d. þar sem þeir eru í virkniúrræðum.
- Ekki er tekið tillit til áhugasviða og væntinga atvinnuleitenda við ákvörðun um virkniúrræði
og í samskiptum við þá almennt. Í því sambandi var m.a. bent á reglur sem nú gilda um val á
námskeiðum í ÞOR verkefninu.
-Stofnunin hefur ekki þekkst boð um aðstoð/samstarf við atvinnuleitendur.
- Ekki er nægilega vel staðið að því að upplýsa atvinnuleitendur um réttindi þeirra og sérkjör
sem þeim bjóðast, t.d. varðandi heilbrigðisþjónustu.
- Takmörk eru fyrir því hvað atvinnuleitendum stendur til boða mörg námskeið, þeim að
kostnaðarlausu.

Í þessu sambandi var rætt um aðkomu atvinnuleitenda að starfi Vinnumálastofnunar og kom m.a. fram að atvinnuleitendur hefðu óskað eftir aðkomu að stjórn VMST.

Þá var rætt um upplýsingamiðlun til atvinnuleitenda, bæði á vefnum og í rituðu formi. M.a. kom fram að nú er kominn í loftið upplýsingavefur fyrir atvinnuleitendur www.betritid.is.

Á seinni hluta fundarins fór Halldór yfir eftirfylgni ASÍ í framhaldi af vinnufundinum í maí. Hann
gerði grein fyrir minnisblaðinu sem hann lagði fram vegna vinnu við endurskoðun laganna um atvinnuleysistryggingar, sem byggir á niðurstöðum vinnufundarins. Hann gerði jafnframt grein
fyrir stöðunni varðandi endurskoðunarvinnuna. Fram kom m.a. að fyrir liggur að bótatímabilið verður lengt. Þá greindi hann frá álitaefnum sem komið hafa upp í umræðunni, m.a. vegna tillagna ASÍ, sem nú eru til frekari skoðunar í ráðuneytinu. Þá greindi Halldór frá niðurstöðum ársfundar ASÍ varðandi málefni atvinnuleitenda. Þar kom m.a. fram krafa varðandi vinnumarkaðsaðgerðir og atvinnuleysisbætur og upphæð þeirra, sem væntanlega verður tekin upp við stjórnvöld í tengslum við kjarasamningaviðræðurnar sem nú eru að hefjast. Þá var einnig rætt um ábendingar um að sett verði fram „lágmarkstekjuviðmið“. Loks benti hann á að hugmyndin um „Umboðsmann atvinnuleitenda/styrkþega“ hefði ekki fengið eitt einasta atkvæði í umfjölluninni í vinnuhópum á ársfundi ASÍ.

Þá sögðu fulltrúar atvinnuleitenda frá verkefninu „Athafnasmiðjan“ og óskuðu eftir stuðningi og beinni aðstoð ASÍ/verkalýðsfélaganna við verkefnið.

Halldór lagði eftirfarandi til í lok fundarins:

1. Efnt verði til formlegs fundar Vinnumálastofnunar með atvinnuleitendum. Á þann fund verði boðaðir formaður stjórnar Vinnumálastofnunar, fulltrúar úr stjórn, lykilstarfsmenn VMST og fulltrúar atvinnuleitenda. Markmið fundarins verði að fjalla um athugasemdir og ábendingar atvinnuleitenda varðandi vinnumiðlun og framkvæmd laga um vinnumarkaðsaðgerðir og atvinnuleysistrygginga. Þá verði fjallað um mögulega aðkomu atvinnuleitenda að starfi VMST með formlegum hætti, s.s. með stofnun notendahóps/notendaráðs atvinnuleitenda. Fundurinn verði undirbúinn með því að fulltrúar atvinnuleitenda setji fram ábendingar sínar og athugasemdir með skriflegum hætti. Halldór/ASÍ mun vinna að því að koma slíkum fundi á.

2. Skoðuð verði nánar upplýsingamiðlun til atvinnuleitenda og möguleg aðstoð ASÍ að því máli. Í því sambandi var rætt um að skoða frekar vefinn www.betritid.is og hvernig megi styðja hann og styrkja, fjárhagslega og starfslega.

3. Halldór mun skoða hvort og þá með hvaða hætti ASÍ og aðildarfélög þess geta stutt við Athafnasmiðjuna, bæði beint og óbeint. Jafnframt var bent á að rétt væri að leita til sveitarfélaganna og Vinnumálastofnunar.

4. Halldór mun gera fulltrúum atvinnuleitenda grein fyrir framgangi mála varðandi endurskoðun laganna um atvinnuleysistryggingar.

5. Halldór mun senda þátttakendum á fundinum gögn varðandi vinnu á Evrópuvísu um lágmarkstekjuviðmið og gögn frá Hagstofu Íslands um lágtekjumörk og tekjudreifingu 2004 - 2009 á Íslandi og annars staðar í Evrópu.

Punkta ritaði Halldór Grönvold.

Þeir atvinnuleitendur sem vilja, koma að vinnu við undirbúning á fundi með ASÍ og Vinnumálastofnun og sitja þann fund gefi sig fram með því að senda póst á netfangið: stjornlagathingmadur@gmail.com.