Heil og sæl
Lengi búinn að hugsa um að byrja að blogga. Það er fyrst nú þegar ég er á námskeiðinu Halló heimur í boði VR. sem ég læt verða af því.
Á morgun er ég að hefja minn 24. mánuð á atvinnuleysisbótum og er því löngu kominn með nóg af því að vera atvinnulaus. Ég hef verið vel virkur atvinnuleitandi og tekið þátt í flestum þeim úrræðum sem eiga að leiða atvinnuleitendur til virkni.
Nú kalla ég á vinnu. Lýsi hér eftir atvinnutækifærum. Þú þarna úti viltu ráða mig í vinnu?
Ég er forvitinn, hugmyndaríkur, með kímnigáfu, smá stríðinn, heiðarlegur/sannur, jarðbundinn og með góða samskiptahæfni. Skarpur náungi.
Ég hef mikla reynslu í sölu- og markaðsmálum svo og verslunarrekstri. Hef oftast verið í stjórnenda hlutverki. Ég hef getu til að læra og get því starfað á ýmsum öðrum sviðum.
Koma svo atvinnurekendur. Ef þú ert atvinnurekandi þá er þér velkomið að hafa samband í gsm. 897 3077 eða á natfangið sphomopati@gmail.com
Sæl að sinni.
Ágætis hugmynd að setja CV og hugmyndir um fyrirtæki á þessa síðu.
ReplyDeleteGæti verið kvetjandi fyrir þá sem eru að leita að fólki
Gangi þér vel með þetta!