Wednesday, June 30, 2010

Halló ég vil vinna

Heil og sæl

Lengi búinn að hugsa um að byrja að blogga. Það er fyrst nú þegar ég er á námskeiðinu Halló heimur í boði VR. sem ég læt verða af því.

Á morgun er ég að hefja minn 24. mánuð á atvinnuleysisbótum og er því löngu kominn með nóg af því að vera atvinnulaus. Ég hef verið vel virkur atvinnuleitandi og tekið þátt í flestum þeim úrræðum sem eiga að leiða atvinnuleitendur til virkni.

Nú kalla ég á vinnu. Lýsi hér eftir atvinnutækifærum. Þú þarna úti viltu ráða mig í vinnu?

Ég er forvitinn, hugmyndaríkur, með kímnigáfu, smá stríðinn, heiðarlegur/sannur, jarðbundinn og með góða samskiptahæfni. Skarpur náungi.

Ég hef mikla reynslu í sölu- og markaðsmálum svo og verslunarrekstri. Hef oftast verið í stjórnenda hlutverki. Ég hef getu til að læra og get því starfað á ýmsum öðrum sviðum.

Koma svo atvinnurekendur. Ef þú ert atvinnurekandi þá er þér velkomið að hafa samband í gsm. 897 3077 eða á natfangið sphomopati@gmail.com

Sæl að sinni.

1 comment:

  1. Ágætis hugmynd að setja CV og hugmyndir um fyrirtæki á þessa síðu.

    Gæti verið kvetjandi fyrir þá sem eru að leita að fólki

    Gangi þér vel með þetta!

    ReplyDelete