Friday, May 6, 2011

Nýr kjarasamningur bótaþega?

Nýr kjarasamningur ASÍ. og SA. hefur verið undirritaður. Þar koma fyrir þrjár klausur sem tengjast atvinnuleitendum og öðrum bótaþegum:
Frá ríkisstjórn vegna kjarasamnings:
  • Stjórnvöld skuldbinda sig til að vinna með aðilum vinnumarkaðarins að endurskoðun laga um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir. Ráðist verður í sérstakt tilraunaverkefni þar sem stéttarfélögin verða helstu veitendur þjónustunnar. Markmiðið er að bæta þjónustu við atvinnuleitendur hvað varðar skráningu, vinnumiðlun og vinnumarkaðsúrræði.

Úr nýjum kjarasamningi:

  • Atvinnuleysisbætur og bætur almannatrygginga fá hliðstæða hækkun og þeir sem eru á lægstu töxtum.

  • Átak verður sett af stað í þjónustu við atvinnuleitendur á vegum stéttarfélaganna og menntunarúrræði verða sett á oddinn bæði fyrir yngra fólk og þá sem komnir eru af skólaaldri.